Eignaver 460-6060
Hamarstígur 18 neðri hæð, Akureyri.
Falleg og mikið endurnýjuð hæð með séreignarrýmum í kjallara, í tvíbýli á frábærum stað rétt við miðbæ Akureyrar. Íbúðin stendur á fallegri lóð á horni Hamarstígs og Ásvegar og er samtals 98,1 fm. ásamt hlutdeild í sameign hússins.
Íbúðin getur verið laus fljótlega.
Íbúðin skiptist í, forstofu, eldhús, borðstofu, stofu, baðherbergi, stigi niður í kjallara en þar eru tvö stór svefnherbergi, geymsla og sameignarrými svo sem þvottahús og snyrting.Nánari lýsing :
l.hæð.
Forstofa, flísar á gólfi og góður fataskápur
Eldhúsið er með fallegri nýlegri innréttingu, parket á gólfi og flísar á milli skápa.
Baðherbergið er nýlega uppgert, flísar á gólfi og veggjum. Góð sturta, falleg innrétting og handklæðaofn.
Stofan er björt og skiptist í borðstofu og stofu, útgengi á vestursvalir úr borðstofu, parket á gólfi.
Kjallari:
Fallegur steyptur stigi liggur niður í kjallarann og er hann teppalagður.
Svefnherbergin eru tvö, bæði rúmgóð og fín, dúkur á gólfum herbergja og fataskápur í einu þeirra.
Geymsla með hillum og lökkuðu gólfi.
þvottahús er sameiginlegt, sérlega rúmgott, hillur og beggur ásamt geymsluskáp, lakkað gólf.
Gestasnyrting í sameign.
Sérinngangur í kjallara að norðan
Geymsla og inntaksrými í sameign í kjallara.
Annað:
- Góðir útleigumöguleikar
- Íbúð uppgerð að stórum hluta. ( 2022 - 2023)
- Gólfefni nýleg að mestu.
- Nýlega uppgert baðherbergi.
- Ljósleiðari er komin í hús.
- Hellulagt bílastæði með hitalögn.
- Góður timburpallur sem snýr til suðurs í sameign.
- Stór og góður garður í óskiptri sameign.
- Húseignin er í einkasölu hjá Eignaveri fasteignasölu ehf.
Nánari upplýsingar veita:
Tryggvi s: 862-7919 /
[email protected]Arnar s: 898-7011 /
[email protected]Begga s: 845-0671 /
[email protected]