Stapasíða 13b, 603 Akureyri
85.900.000 Kr.
Raðhús/ Raðhús á tveimur hæðum
5 herb.
165 m2
85.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
1980
Brunabótamat
79.000.000
Fasteignamat
73.700.000

Eignaver 460-6060

Stapasíða 13 b Akureyri.

Falleg og þó nokkuð endurnýjuð 5 herbergja íbúð í raðhúsi með innbyggðum bílskúr á vinsælum stað í Síðuhverfi.  165,4 fm. þar af er bílskúr 21,9 fm.


Nánari lýsing:

Neðri hæð:
Forstofa, flísar á gólfi og fatahengi þar. 
Snyrting er við forstofu, upphengt WC og flísar á gólfi. 
Hol/gangur, flísar á gólfi og skemmtilegt leikhorn undir stiga. 
Eldhúsinnréttingin er upprunaleg en það er búið er lyfta henni aðeins upp :  Árið 2022 þá var bekkur filmaður, blöndurartæki og eldhúsvaskur endurnýjaður.  Flísar á milli skápa og á gólfi. Borðkrókur. 
Stofan er rúmgóð og fín, parket á stofugólfi og þar er farið út á rúmgóða og fína verönd. Falleg lýsing á sólpalli með skynjurum.  Perlumöl við enda sólpallst, ekkert gras !
Þvottahús er við forstofu og þar er einnig útgangur. Árið 2021 þá var sett falleg hvít innrétting þar sem gert er ráð fyrir að hafa þurrkara og þvottavél í vinnuhæð. 
Bílskúrinn er innbyggður, flísar á gólfi þar. 

Efri hæð:

Timburstigi er á milli hæða. 
Sjónvarpshol, rúmgott og fínt sjónvarpshol, parket á gólfi. 
Svefnherbergin eru fjögur. 1) parket. 2) parket. 3) parket og svalir til suðurs. 4) parket og þar eru rúmgóðar svalir til norðurs. 
Baðherbergið er rúmgott, flísar á gólfi og hvít innrétting.  Baðkar og sturtuklefi sér.  Upphengt WC og gluggi með opnalegu fagi. 

Annað:
- Gluggar að norðanverðu voru endurnýjaðir árið 2020.
- Útihurðir voru endurnýjaðar árið 2018.
- Húsið múrviðgert og málað að utan árið 2021.
- Þakrennur endurnýjaðar árið 2016.
- Hitaþráður í þakrennum
- Gluggar málaðir að innan árið 2022.
- Búið er að setja nýtt kaldavants- og hitaveituinntak. 
- Bílaplan var malbikað árið 2023.

- Húseignin er í einkasölu hjá Eignaveri fasteignasölu ehf. 

Nánari upplýsingar veita:
Tryggvi          s: 862-7919   / [email protected]
Arnar             s: 898-7011   / [email protected]
Begga            s: 845-0671   / [email protected]




 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.