Langahlíð 9 b , 603 Akureyri
106.900.000 Kr.
Raðhús/ Raðhús á tveimur hæðum
7 herb.
250 m2
106.900.000
Stofur
2
Svefnherbergi
5
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
1967
Brunabótamat
109.700.000
Fasteignamat
87.400.000



EIGNAVER 460-6060
Langahlíð 9B, björt og rúmgóð tveggja hæða raðhúsaíbúð með innbyggðum bílskúr á góðum stað í Glerárhverfi - stærð 250,4 m² - Útleigumöguleikar á neðri hæð.

Eignin skiptist með eftirtöldum hætti
Efri hæð forstofa, gangur, eldhús, stofa, sjónvarpshol, þrjú svefnherbergi og baðherbergi. Geymsluloft er yfir allri íbúðinni.
Neðri hæð forstofa, tvö herbergi ( herbergi innaf herbergi ), bílskúr. Tvær rúmgóðar kaldar geymslur. Góð stúdíóíbúð.

Efri hæð:
Forstofa gengið er upp steyptar tröppur að aðalinngangi. Þar eru flísar á gólfi og innfelldur skápur. 
Eldhús vönduð spónlögð eikar innrétting frá Tak innréttingum og stór eyja. Ljósar flísar á gólfum og á eyju. Gott skápa og bekkpláss. Stæði er fyrir tvöfaldan ísskáp og uppþvottavél í innréttingu. Í innréttingu í eldhúsi er stæði fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. 
Stofa er björt og með stórum gluggum. Þar er ljóst parket á gólfi og kamína. Úr stofu er hurð út á verönd. 
Sjónvarpshol er með ljósu parketi á gólfi. Opið er á milli stofu og sjónvarpshols.
Svefnherbergin eru þrjú, öll með ljósu parketi á gólfi og fataskápum. 
Baðherbergi  er flísalagt í hólf og gólf, snyrtileg eikar innrétting, upphengt wc og hornbaðkar með sturtutækjum og skilrúmi.
Geymsluloft er yfir allri íbúðinni og er fellistigi á gangi. 

Neðri hæð
Forstofa/gangur á neðri hæð er einnig með flísum á gólfi.
Herbergi er tvö, herbergi innaf herbergi, bæði með ljósu parketi á gólfi.
Bílskúr er með gráum flísum á gólfi. Hluta bílskúrs hefur verið breytt í herbergi og er hann því ekki nema um 20 m² í dag. Auðvelt er að breyta aftur. Lúga er í bílskúrsgólfi niður í lagnakjallara sem er undir stærstum hluta hússins. Fyrir framan bílskúr er steypt bílaplan.
Lítil íbúð ( ca. 50 fm ) er á neðri hæð. Sérinngangur. Um er að ræða rými er skiptist í forstofu þar eru flísar á gólfi, herbergi, stofa og eldhús eru í sama rými, parket er á gólfi og fín IKEA innrétting í eldhúsi. T.f þvottavél er í forstofu. Baðherbergi er með flísum á gólfi og hluta veggja, hvít innrétting, wc og sturta. Útgangur er út á verönd. Leiguíbúð er nýuppgerð og gólfhiti er í íbúð að mestu hluta. Lagnir nýlegar.  
Þá eru tvær kaldar geymslur, önnur undir verönd að vestan verðu og hin undir stigapalli að austanverðu.

Annað: 
- Frábær staðsetning.
- Heilsugæslan og Glerártorg í göngufæri.
- Stutt í leik, grunnskóla og háskóla.
- Skipt hefur verið um gler í gluggum í stofu og hjónaherbergi. 
- Rafmagnstafla endurnýjuð.
- Búið er að draga nýjar raflagnir á efri hæð og endurnýja tengla. 
- Fín verönd er vestan við hús, bæði timbur og hellur. Heitur pottur.

Eignin er í einkasölu hjá Eignaveri fasteignasölu.

Nánari upplýsingar:
Begga            s: 845-0671   /[email protected]
Tryggvi          s: 862-7919   / [email protected]
Arnar             s: 898-7011   / [email protected]


 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.