Túngata 12, 610 Grenivík
82.900.000 Kr.
Einbýli
6 herb.
183 m2
82.900.000
Stofur
2
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1979
Brunabótamat
78.800.000
Fasteignamat
53.900.000

Eignaver 460-6060

Túngata 12, Grenivík
Sex herbergja einbýlishús á einni hæð með bílskúr á rúmgóðri lóð á Grenivík. Húsið er 183,5 men þar af er 43,7 mbílskúr.


Eignin skiptist í forstofu og geymslu (gestasnyrting á teikningu) stofu, borðstofu, eldhús, þvottahús, herbergisgang með baðherbergi og fjórum svefnherbergjum og einu fataherbergi.
Bílskúr stendur stakstæður við austurhlið hússins.

Nánari lýsing:
Forstofa, flísar á gólfi og fataskápur.
Geymsla (gestasnyrting á teikn.) flísar á gólfi og hillur.
Eldhús, Innrétting með góðu skápa- og bekkjaplássi, sem hefur verið máluð. Flísar eru á milli skápa, flísar á gólfum og gólfhiti. Rúmgóður borðkrókur. 
Stofa og borðstofa eru í opnu og björtu rými og eru upptekin loft í þeim hluta hússins. Gegnheilt viðarparket er á gólfi.
Gangur, parket á gólfi.
Svefnherbergin eru fjögur á ganginum. Hjónaherbergi og  barnaherbergin eru með parketi á gólfum, ekki eru fataskápar í svefnherbergjum heldur er búið að útbúa sér fataherbergi í norðurenda gangsins.
Baðherbergið er með flísum á gólfi og veggjum, ljós máluð innrétting, wc, hornbaðkar með sturtutækjum og handklæðaofn.
Þvottahús, er við hliðina á eldhúsi. Þar er útihurð og útgengi í bakgarð og að bílskúr. Flísar á gólfi og gólfhiti. Gott skápapláss. Hleri er í loftinu upp á loft sem er yfir húsinu. 
Geymsluskúr er við enda hússins til norðurs. Skúrinn er 15 m2 og með auka geymslulofti að hluta. Skúrinn er hitaður upp með affallsvatni, rafmagn er í skúrnum.
Bílskúrinn er stór, skráður 43,7 m², flísalagt gólf, vinnuborð og hillur. Sturtuaðstaða fyrir heitan pott. Nýleg led lýsing, rafdrifin innkeyrsluhurð og steypt bílaplan.

Annað 
- um 400 m2 af steyptum stéttum allt í kringum húsið og er um helmingur þeirra hitaður upp með affallsvatni hússins.
- Stór og góður garður.
- Hitaveitupottur í bakgarði.
- Varmaskiptir á neysluvatni.
- Ofnalagnir hafa verið endurnýjaðar að mestu.
- Rafmagnstafla hefur verið endurnýjuð.
- Gler endurnýjað að mestu 2019.
- Frárennsli og neysluvatnslagnir frá húsi og út í götu, endurnýjað að mestu fyrir um u.þ.b. 8 árum.

Eignin er í einkasölu hjá Eignaveri fasteignasölu 

Nánari upplýsingar veita;
Begga   s: 845-0671   /[email protected]
Arnar    s: 898-7011   /arnar @eignaver.is
Tryggvi s: 862-7919   /[email protected]

 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.