EIGNAVER 460-6060
Hulduholt 17 Akureyri. Nýbygging.
Glæsileg, ný og vönduð 3-4ra herbergja íbúð í raðhúsi á einni hæð á frábærum stað í Holtahverfi. Íbúðin er 97,2 fm. Nánari lýsing:
- Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús og stofu í opnu rými, hjónherbergi, barnaherbergi, geymslu sem nýtist sem svefnherbergi, baðherbergi og inntaksrými/geymslu. Gengið er úr stofu út á verönd sem snýr til vesturs og norðurs.
Forstofa, parket á gólfi og fataskápur.
Hol/gangur, parket á gólfi.
Eldhúsinnrétting er vönduð og glæsileg, tveir ofnar, eyja, falleg vifta, parket á gólfi í eldhúsi.
Baðherbergið er glæsilegt, fallegar flísar á gólfi og veggjum. handklæðaofn, upphengt WC og "walk in" sturta. Innnrétting og aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara.
Svefnherbergi eru þrjú, parket á gólfum herbergja og fataskápur í þeim öllum. ( ATH: eitt svefnherbergið er skráð sem geymsla )
Stofan er með parketi á gólfi og úr stofu er farið út á steypta verönd til norður/vestur.
Inntaksrými/geymsla, parket á gólfi.
Annað:
- Frábær staðsetning.
- Gróðursælt norðan, vestan og austan við raðhúsið.
- Hljóðdempandi dúkur er í lofti stofu og alrýmis.
- Vínyl parket og flísar á gólfum.
- Loftskiptakerfi er í íbúðinni.
- Þessi íbúð er laus til afhendingar strax og er síðasta óselda íbúðin í þessu nýja og glæsilega raðhúsi. Eignin er í einkasölu hjá Eignaveri fasteignasöluNánari upplýsingar hjá eftirtöldum aðilum :
Begga S: 845-0671 / [email protected]
Tryggvi s: 862-7919 / [email protected]
Arnar s: 898-7011 / [email protected]