EIGNAVER 460 6060.
Þórunnarstræti 114, íbúð 201
Glæsileg og vönduð þriggja herbergja íbúð í mikið endurnýjuðu húsi við Þórunnarstræti 114 á Akureyri. Íbúðin er samtals 102,5 fm. en þar af er sérgeymsla í kjallara 38,4 fm. sem gæti nýst sem útleigurými/íbúð.
Suðvestur svalir fylgja þessari íbúð.
ATH: Möguleiki er á að kaupa allt húsið í einu lagi, samtals fjórar íbúðir, góðar einingar til útleigu.
Frábær staðsetning: Miðsvæðis á Akureyri, rétt hjá sundlauginni !Húsið er tvær hæðir auk kjallara með 4 íbúðum, tveimur á hvorri hæð. Í kjallara eru rúmgóð geymslurými sem fylgja þremur af fjórum íbúðum og gefa mikla möguleika. Húseignin hefur verið endurnýjuð mikið undanfarið ár á vandaðan hátt og búið er að breyta húseigninni þannig að nú eru í henni fjórar glæsilegar íbúðir.
Gólfhiti í íbúðum, raf- og vatnslagnir hafa verið endurnýjaðar, skipt hefur verið um glugga og gler og húsið málað að utan.
Fallegar innréttingar og gófefni. Vandað hefur verið til verka í kringum allt húsið og m.a. hefur verið sett grjóthleðsla, gangstéttar og rúmgott bílaplan með snjóbræðslukerfi, rafhleðslustöð o.fl.
Íbúð 201Er þriggja herbergja á efri hæð. Íbúðin sjálf er 64,1 fm. ásamt 38,4 fm. sérgeymslu í kjallara samtals 102,5 fm. Eignin samanstendur af forstofu, baðherbergi þar sem gert er ráð fyrir þvottavél, svefnherbergi, eldhúsi og stofu í einu rými, og hjónaherbergi.
Gengið er inn í þessa íbúð um sameiginlegan inngang fyrir íbúðir 201 og 202, sem snýr til vesturs, teppalagður stigi upp á aðra hæð.
KjallariÍbúðinni fylgir góð 38,4 fm. geymsla/rými í kjallara sem snýr til suðurs, en allar lagnir eru til staðar svo hægt sé að innrétta rýmið sem tveggja herbergja íbúð. Á rýminu eru stórar tvöfaldar útidyr sem snúa til suðurs og fyrir framan er steypt stétt með hitalögn.
Fjögur bílastæði fylgja húsinu í heild.
Annað:
- Parket og flísar á gólfum íbúðar.
- Hvítir fataskápar í herbergjum íbúðar og í forstofu.
- Hvítar innréttingar í eldhúsi og baðherbergi, viðarbekkir í eldhúsi.
- Verið er að breyta teikningum og skráningartöflu hússins og áætlað að það verði klárt innan fárra daga.
- Afhending eignar er við undirritun kaupsamnings.
Tryggvi s: 862-7919 / [email protected]Begga s: 845-0671 / [email protected]Arnar s: 898-7011 / [email protected]