EIGNAVER 460-6060
Ægissíða 27 Grenivík.
Fallegt og þó nokkuð endurnýjað sex herbergja einbýlishús á tveimur hæðum ásamt stakstæðum bílskúr. Húseignin er samtals 219,2 fm. Nánari lýsing.
Efri hæð ( 97,2 fm)Forstofa, flísar á gólfi og fatahengi.
Hol/gangur, parket á gólfi.
Svefnherbergin eru þrjú, parket á gólfum og fataskápar í þeim öllum.
Baðherbergið er með flísum á gólfi og veggjum. Baðkar með sturtutækjum, hvít innrétting. Hiti er í gólfi á baðherbergi.
Stofa, parket á gólfi, gluggar snúa til vesturs og norðurs.
Eldhús, rúmgóð hvít innrétting með dökkri bekkjarplötu, korkflísar á gólfi. Eldhúsið var endurnýjað árið 2008.
Búr, lítið búr er við stiga sem liggur frá eldhúsi niður á neðri hæð/kjallara hússins.
Kjallari ( 97,2 fm).Gangur með plastparketi á gólfi.
Lítil geymsla/lagnaherbergi en þar væri auðvelt að útbúa snyrtingu.
Svefnherbergin eru tvö, bæði með plastparketi á gólfi og lausum fataskápum.
Þvottahús steypt gólf / lakkað.
Tvær góðar geymslur eru á neðri hæð sem auðvelt væri að breyta í svefnherbergi. Lítið rými er fyrir framan aðra geymsluna þar sem rafmagnstaflan er staðsett.
Bílskúr er mikið upprunalegur, lakkað gólf, hitaveita. Ekki er neysluvatn í bílskúr en kaldavatnslögn með krana er utaná bílskúrnum.
Bílaplan er malbikað.
Annað:- Búið er að einangra og klæða húsið að utan og var það gert árið 1970 en húsið er forskallað timburhús.
- Eignin er laus til afhendingar vorið 2023
- Ofnalagnir hafa að mestu verið endurnýjaðar.
- Rafmagnslagnir hafa að mestu verið endurnýjaðar ásamt rafmagnstöflu.
- Steypt rúmgóð verönd sem snýr til suðurs.
- Gler og gluggar hafa nýlega verið endurnýjaðir.
- Húsið málað að utan árið 2018 - þakið var yfirfarið og málað sama ár. Þak er upprunalegt.
- Árið 2008 var frárennsli endurnýjað frá húsi og út í götu.
Eignin er í
einkasölu hjá Eignaveri fasteignasölu ehf.
Nánari upplýsingar veita:
Begga s. 845-0671 / [email protected]Tryggvi s: 862-7919 / [email protected]Arnar s: 898-7011 / [email protected]