Eignaver 460-6060
Þormóðsgata 23 Siglufirði.
Sjarmerandi, fallegt og þó nokkuð endurnýjað einbýlishús á góðum stað á Siglufirði. Búið er að útbúa 3ja herbergja leiguíbúð í kjallara. Samtals er húseignin 212,6 fm. Nánari lýsing:
Efri hæð.Forstofa, lakkað gólf.
Gengið er niður tröppur og þar er búð að útbúa
þvottahús og geymslu.Hol/gangur, pússuð gólfborð og holið nýtist sem
sjónvarpsrými í dag.
Svefnherbergin eru tvö, pússuð gólfborð.
Stofa og eldhús koma saman í einu rými.
Eldhúsinnréttingin er skemmttilega hönnuð í stíl við aldur hússins. ( sjón er sögu ríkari :) )
Stofan er rúmgóð, pússuð gólfborð og útgangur frá stofu út á verönd til suðurs.
Baðherbergið er fallegt og sjarmerandi. Gólfborð, flott innrétting úr gömlum skenk/mublu, upphengt WC og frístandandi baðkar.
Neðri hæð / kjallari:Búið er að gera fína útleiguíbúð í kjallara með sérinngangi að austanverðu.
Eldhús og stofa koma saman, flotað gólf og fín innrétting í eldhúsi.
Svefnherbergin eru tvö, lakkað gólf í herbergjum.
Baðherbergið er með flísum á gólfi og veggjum, fallega uppgert rými, sturta, innrétting og upphengt WC.
------ Flott hönnun, þar sem alls konar gömul húsgögn, innihurðir ofl. fá endurnýjun lífdaga í innréttingum hússins -----Annað:
- Gólfhiti í leiguíbúð í kjallara.
- Búið er að klæða húsið að hluta til að utan, eftir að einangra og klæða kjallara hússins.
- Eftir er að klæða upp í loft að mestu ( efri hæð )
- Frárennslislagnir hafa verið endurnýjaðar sem og drenlögn.
- Þak og þakrennur hafa verið endurnýjaðar.
-Rúmgóður pallur til suðurs.
- Nýlegir gluggar á efri hæð.
- Hiti í stétt fyrir framan leiguíbúð í kjallara.
- Séríbúð í kjallara / góðar leigutekjur.
- Húseignin er í
einkasölu hjá Eignaveri fasteignasölu ehf.
Nánari upplýsingar veita:
Begga s: 845-0671 /
[email protected]Arnar s: 898-7011 /
[email protected]Tryggvi s: 862-7919 /
[email protected]