Skálateigur 5, Akureyri
EIGNAVER 460 6060
Skálateigur 5
Björt og falleg, 99,5 fm, 3ja herb. íbúð á tveimur hæðum með sérinngangi, sér geymslu og stæði í bílageymslu. Laus við kaupsamning ! Möguleg skipti á eign á höfuðborgarsvæðinu.
Eignin skiptist með eftirfarandi hætti:
Efrihæð; forstofa, svefnherbergi, eldhús og stofa.
Neðrihæð; gangur/hol, svefnherbergi og baðherbergi/þvottaaðstaða.
Nánari lýsing:
Forstofa er með flísum á gófi og góðum fataskáp.
Eldhús er rúmgott með vandaðri spónlagðir eikarinnréttingu, keramik helluborð og ofn. Hvítar flísar eru á milli skápa. Stæði fyrir ísskáp og uppþvottavél er í innréttingu.
Stofa er björt og er samliggjandi með eldhúsi. Stórir gluggar eru í stofunni sem gefa mikla birtu inn í íbúðina. Gott útsýni til austurs
Svefnherbergin eru tvö, eitt á hvorri hæð. Eikar parket á gólfi og fataskápar í báðum herbergjum.
Baðherbergi/þvottaaðstaða þar eru flísar á gólfi og hluta veggja, spónlögð eikar innrétting, handklæðaofn og baðkar með sturtutækjum. Léttur veggur skilur þvottaaðstöðu frá baðherbergi. Þar er bekkur með stálvask og hillur.
Sér geymsla er í kjallara.
Eikarparket er á öllum gólfum íbúðar fyrir utan forstofu og baðherbergi, þar eru flísar og á stiga milli hæða er teppi.
Gólfhiti í allri íbúðinni.
Gengið er út á hellulagða verönd af holi á neðri hæð. Timbur skjólveggur afmarkar veröndina.
Eignarhlutur í sameign, bílakjallara og ofl. eru 30 fm samkvæmt eignaskiptayfirlýsing.
Eignin er í einkasölu hjá Eignaveri.
Nánari upplýsingar veita:
Tryggvi s: 862-7919 / tryggvi@eignaver.is
Arnar s: 898-7011 / arnar@eignaver.is
Erla s: 868-7601 / erla@eignaver.is